Gættu þín í útlöndum
Margir símnotendur hafa uppgötvað með óþægilegum hætti, að símnotkun í útlöndum getur kostað skildinginn. Kostnaðurinn er mismikill milli landa en sum staðar er hann mun hærri en fólk gerir ráð fyrir. Þess vegna er afar mikilvægt, að símnotendur kynni sér málið áður en lagt er af stað því hægt er að lækka símkostnaðinn með ýmsum hætti.

Að sama skapi hvetjum við fólk til að skoða ekki vefsíður í símanum, sækja og senda tölvupóst, myndir og skjöl úr símtækinu nema það viti nákvæmlega hvað þjónustan kostar. Slíkt getur nefnilega verið rándýrt! Ef þú hins vegar tryggir þér bestu mögulegu kjörin áður en lagt er af stað og kynnir þér verðskrár ólíkra landa gæti símreikningurinn við heimkomuna komið þér þægilega á óvart! Hafðu þetta bara í huga:
- Það er alltaf ódýrara að taka á móti símtölum erlendis heldur en að hringja heim.
- Það er ódýrara í flestum tilvikum að hringja frekar en að eiga "SMS samtal."
- Það kostar ekkert að taka á móti SMS erlendis.
- Þú getur alltaf sent ókeypis SMS af vodafone.is ef þú hefur aðgang að Netinu erlendis.
- Símtal á milli tveggja GSM síma í útlöndum er tvöfalt útlandasímtal – fyrst heim og síðan aftur út! Þótt viðmælandinn sé við laugina og þú á ísbarnum rétt hjá!
- Ef símtöl til þín fara í talhólfið þitt þá ertu að borga tvöfalt útlandasímtal – fyrst frá Íslandi til útlanda og síðan aftur í talhólfið á Íslandi! Jafnvel þótt slökkt sé á símanum!
- Ekki svara ef þú vilt ekki borga! En þá verður þú líka að taka talhólfið alveg úr sambandi, því talhólfssvar jafngildir að sjálfsögðu svari.
- Ef þú vilt endilega vita hver hringdi þá skráðu þig ókeypis í Hver hringdi þjónustuna og þá færðu eitt SMS með öllum þeim sem reyndu að ná í þig á meðan þú varst með slökkt á símanum eða utan svæðis.