BlackBerry
Unnendur BlackBerry geta tekið gleði sína því fyrsta 3G tækið frá fyrirtækinu, sem ber nafnið BlackBerry Bold, er nú komið í sölu hér á landi, en það hefur aðeins verið sett í sölu í örfáum löndum.
Auk 3G-tækninnar geta notendur BlackBerry Bold einnig notað hefðbundið þráðlaust netsamband (WiFi) til að fara á netið án kostnaðar, en slíkt netsamband er á mörgum heimilum, vinnustöðum og opinberum stöðum, til dæmis kaffihúsum.
Notendaviðmótið í nýja tækinu hefur verið endurhannað. Þá er BlackBerry Bold búið GPS staðsetningarbúnaði, en sú tækni ásamt BlackBerry landa- og götukortum gefur nákvæmar upplýsingar sem m.a. má aka eftir á ferðalögum um heiminn.
Hér á landi fæst BlackBerry Bold aðeins hjá Vodafone.